Tveir leikir fóru fram í Bónus deild kvenna í kvöld.
Úrslit leikja kvöldsins voru ekki síst merkileg fyrir þær sakir að nú er ljóst hvaða lið verða í efri hluta og neðri hluta deildarinnar eftir að hún skiptist eftir næstu umferð.
Mest var undir hjá Keflavík, sem þurfu að ná í sigur gegn KR til að geta skákað Val í 5. sæti deildarinnar, en þrátt fyrir að ein umferð (2 leikir hjá Val) sé eftir er það svo að þó Keflavík jafni Val að stigum, þá á Valur innbyrðis á Keflavík og verða því alltaf allavegana í 5. sætinu.
Hér fyrir neðan má sjá hvernig deildin mun skiptast upp, en þrátt fyrir skiptinguna, eru það efstu átta lið allrar Bónus deildarinnar sem fara í úrslitakeppnina.
Í efri hlutanum verða því Haukar, KR, Grindavík, Njarðvík og Valur.
Í neðri hlutanum verða Keflavík, Stjarnan, Tindastóll, Ármann og Hamar/Þór.
Staða deildarinnar (leikir,sigrar,töp)
1 Haukar 17 12 5
2 KR 17 12 5
3 Grindavík 16 11 5
4 Njarðvík 16 11 5
5 Valur 16 10 6
6 Keflavík 17 9 8
7 Stjarnan 17 8 9
8 Tindastóll 16 5 11
9 Ármann 16 2 14
10 Hamar/Þór 16 2 14




