spot_img
HomeBikarkeppniSvo mun Keflavík taka þetta á endanum

Svo mun Keflavík taka þetta á endanum

Úrslitaleikir VÍS bikarkeppninnar verða leiknir í Smáranum á morgun laugardag. Fyrri leikurinn er leikur KR og Stjörnunnar í meistaraflokki karla, en sá seinni er á milli Keflavíkur og Grindavíkur í meistaraflokki kvenna.

Karfan fékk nokkra málsmetandi aðila til þess að spá fyrir um leikina tvo. Ásta Júlía Grímsdóttir miðherji íslenska landsliðsins og Vals í Bónus deildinni spáir því að Stjarnan og Keflavík hampi titlunum á morgun.

Hérna eru allir leikir VÍS bikarvikunnar

Úrslitaleikur karla – KR gegn Stjörnunni

Hvernig fer leikurinn? Stjarnan vinnur með sjö

Hvernig á hann eftir að spilast?

Ég held að þetta verði jafn leikur en Stjarnan verður skrefi á undan allan tíman.

Úrslitaleikur kvenna – Grindavík gegn Keflavík

Hvernig fer leikurinn? Keflavík vinnur með tveimur

Hvernig á hann eftir að spilast?

Þetta eru mjög ólík lið. Keflavík á eftir að hlaupa á meðan Grindavík mun leita mikið inn í.  Liðin munu skiptast á að gera áhlaup en svo mun Keflavík taka þetta á endanum.

Fréttir
- Auglýsing -