Eins og flestir vita vann U18 lið Íslands glæsilegan sigur á Svartfjallalandi í gær, 80 – 68. Íslenska liðið lagði grunninn að sigrinum með stórkostlegum þriðja leikhluta þar sem liðið skoraði 29 stig gegn 20 stigum Svartfellinga. Fyrir liði Íslands fór Martin Hermannsson en hann skoraði 19 stig í leiknum. Elvar Friðriksson átti einnig mjög góðan leik fyrir íslenska liðið með 15 stig, 7 stoðsendingar og 5 fráköst. Hérna fyrir neðan má sjá svipmyndir úr leik liðanna og ekki annað af myndunum að dæma en að íslenska liðið hafi leikið stórkostlegan leik. Næsti leikur liðsins er seinna í dag gegn Noregi.