HomeFréttirSvipmyndir úr Fjósinu: ÍR landaði mikilvægum stigum

Svipmyndir úr Fjósinu: ÍR landaði mikilvægum stigum

00:31
{mosimage}

(Igor Beljanski gerði 18 stig og tók 13 fráköst fyrir Skallagrím sem dugði skammt gegn ÍR)

Skallagrímur tók í kvöld á móti ÍR í Fjósinu í Borgarnesi þegar 19. umferð Iceland Express deildar karla rúllaði af stað. ÍR landaði mikilvægum stigum í Fjósinu með 59-67 sigri á Borgnesingum sem þegar eru fallnir í 1. deild en ÍR á í harðri baráttu um sæti í úrslitakeppninni.

Sterkur þriðji leikhluti hjá ÍR skilað miklu þar sem gestirnir úr Breiðholti gerðu 27 stig gegn 17 frá heimamönnum. Eftir sigurinn í kvöld er ÍR með 16 stig í 7. sæti deildarinnar en Skallagrímur er sem fyrr á botninum með 4 stig. Stigahæstur í sigurliði ÍR í kvöld var Sveinbjörn Claessen með 26 stig og 7 fráköst en í liði Skallagríms var Igor Beljanski með 18 stig, 13 fráköst og 6 stoðsendingar.

Sigga Leifs mætti í Fjósið og tók meðfylgjandi myndir.

{mosimage}

{mosimage}

{mosimage}

{mosimage}

{mosimage}

{mosimage}

{mosimage}

{mosimage}

Fréttir
- Auglýsing -