Skallagrímsmenn áttu harma að hefna frá því á haustdögum er Laugdælir sigruðu þá á Vatninu í 1. deild karla. Leikmenn Skallagríms komu mjög ákveðnir til leiks og eftir fyrstu mínúturnar var nokkuð ljóst hvort liðið væri sterkara í kvöld. Staðan í hálfleik var 56-29 fyrir Skallagrím. Lokatölur 99-64.
Hafþór Gunnarsson fór fyrir sínum mönnum og skorði 28 stig, þar af 4 þrista, tók 4 fráköst og gaf 6 stoðsendingar. Halldór Gunnar setti 19 stig þar af 4 þrista, Mateusz skoraði 15 stig og tók 12 fráköst. Davíð Guðmundsson setti 13 stig þar af 3 þrista. Trausti Eiríksson skoraði 9 stig þar af 3 þrista og tók 9 fráköst og gaf 5 stoðsendingar. Birgir, Elfar, Óðinn og Guðjón áttu góða spretti og voru drjúgir í fráköstum og skiluðu sínu vel. Andrés og Ragnar sömuleiðis og þá kom Pálmi þjálfari inná í restina við mikinn fögnuð í stúkunni. Darrell Flake sat á bekknum í kvöld vegna hnjámeiðsla en koma Trausta til Skallagríms hafði mikið að segja fyrir liðið. Sigur Skallagríms hefði getað orðið stærri en Pálmi lét alla sína 12 leikmenn spila töluvert og hvíldi lykilmenn í restina.
Laugdælir héldu úti góðri baráttu allan leikinn og hafa á að skipa góðum leikmönnum þó ekki hafi þeir komist lönd né strönd gegn sterku liði Skallagríms. Pétur Már setti 18 stig fyrir Laugdæli og tók 7 fráköst, Bjarni skoraði 16 og Jón H. 9.
Hallur Gríms




