spot_img
HomeFréttirSverrir Þór tekur við kvennaliði Keflavíkur

Sverrir Þór tekur við kvennaliði Keflavíkur

Sverrir Þór Sverrisson fyrrum þjálfari Grindavíkur og kvennaliðs Njarðvíkur mun stýra Keflavíkurliðinu út leiktíðina en kkd. Keflavíkur og Sverrir komust að samkomulagi um þetta nú í kvöld. Sverrir er vissulega þekkt stærð í þjálfaraheiminum en hann hefur verið í fríi frá þjálfun síðan hann sagði skilið við Grindvíkinga á síðasta tímabili.  Sverrir gerði kvennalið Njarðvíkur að Íslands og bikarmeisturum leiktíðina 2011 og 2012 og stýrði svo Grindvíkingum að meistartitlum tvö ár í röð. 

 

Eins og flestir vita þá var Margrét Sturlaugsdóttir sagt upp störfum í gær en lið Keflavíkur er í þriðja sæti Dominosdeildar kvenna og í dag fóru þær Keflvísku áfram í bikarnum eftir sigur á Skallagrím. 

Fréttir
- Auglýsing -