„Þetta var stál í stál lengst af,“ sagði Sverrir Þór Sverrisson eftir sigur Grindvíkinga í einvíginu gegn Þór Þorlákshöfn í 8-liða úrslitum. Grindvíkingar eru komnir í undanúrslit Domino´s deildarinnar og mæta Njarðvíkingum í næstu umferð. Arnar Þór Ingólfsson ræddi við Sverri Þór eftir leik í Icelandic Glacial Höllinni í kvöld.






