HomeFréttirSveinn Ómar: Það er enginn tilbúinn að fara í sumarfrí í mars

Sveinn Ómar: Það er enginn tilbúinn að fara í sumarfrí í mars

„Við bjuggumst alveg við þeim í hörku ham eins og þeir voru í, í síðasta leik. Þeir voru mjög kraftmiklir í síðasta leik en voru ekki að hitta vel þannig að ég átti alveg von á því að þeir myndu enda þetta sterkar á heimavelli og í hörku leik og vorum alveg klárir í það en við áttum bara afleitan dag,“ sagði Pálmi Sigurgeirsson leikmaður Snæfells eftir leik Hauka og Snæfells.
Haukar hafa greinilega farið vel yfir leiki sína gegn Snæfelli fyrir úrslitakeppnina en algjör viðsnúningur hefur verið á leik þeirra frá því sem þeir sýndu í báðum deildarleikjunum gegn Snæfelli. Samtals unnu Hólmarar leikina með 70 stigum en Haukar leiða einvígið milli liðanna með einu stigi. Þá lá því beinast við að spyrja Pálma hvort að Snæfellingar væru að vanmeta Haukaliðið.
 
„Nei nei við fórum alveg yfir það eftir fyrsta leikinn að það kæmi ekki til greina að vanmeta neinn andstæðing í úrslitakeppninni þó að við höfum unnið leikina í deildinni á sannfærandi hátt. Við ætluðum að vinna leikinn í kvöld og komast áfram en það bara tókst ekki. Haukarnir áttu þetta skilið og við spiluðum ekki nógu vel og verðum bara að taka þetta í næsta leik.“
 
Pálmi spáði sínum mönnum að sjálfsögðu sigur á miðvikudaginn en var ekki tilbúinn að kasta fram neinum tölum og sagði bara: „Við tökum næsta leik.“
 
„Þetta var yndislegt, gerist ekki betra,“ sagði Sveinn Ómar Sveinsson leikmaður Hauka þegar karfan.is náði í skottið á honum.
 
Mikið var rætt um það fyrir leikinn að Snæfellingar myndu koma vel stemmdir til leiks í kvöld þar sem að leikur þeirra var ekki sannfærandi í fyrsta leik liðanna. Sveinn Ómar sagði að Haukaliðið hefði undirbúið sig vel undir þessa leiki og væru búnir að æfa vel síðustu viku.
 
„Við erum búnir að eiga góða viku og búnir að kortleggja leikinn þeirra með video fundum og höfðum trú á því að við gætum unnið þetta eins og sýndi sig í seinasta leik þar sem við erum yfir nánast allan tímann en reynsluleysi kostaði okkur sigurinn sem og ömurleg hittni. Það var annað upp á teningnum í kvöld það höfðu allir trú á því að við gætum þetta, maður fann það bara frá fyrstu mínútu.“
 
„Það hefur sýnt sig núna í vetur að við höfum ekki haft neina reynslu og erum búnir að lenda nokkrum sinnum í þessu. Ég held að það hafi bara verið tímaspursmál hvenær við myndum yfirstíga þennan múr að stöðva svona áhlaup þegar það kæmi,“ sagði Sveinn um það að Haukar hafa ekki verið að klára þá leiki sem hafa verið jafnir á lokamínútunum í vetur.
 
Sævar Ingi Haraldsson hefur leikið með Haukum í leikjunum gegn Snæfell og ljóst að hann er gríðarlega mikilvægur fyrir Haukaliðið enda sennilegast sá leikmaður í Haukaliðinu sem hefur mesta reynslu af úrslitakeppninni. Sveinn segir að mikilvægi Sævars sé gríðarlegur.
 
„Við erum bara með einn ungan strák í þessari stöðu, Emil, og það er erfitt að leggja alla ábyrgð á hann þegar hann er 19 ára að spila í úrvalsdeild í fyrsta skiptið. En það er alveg frábært að fá Sævar aftur enda lykilmaður í þessu liði og hann og Siggi [Sigurður Einarsson] eru einu leikmennirnir sem hafa spilað í úrslitakeppninni í þessu liði. Ég held að það séu ekki mörg lið sem hafa aðeins tvo leikmenn sem hafa spilaði í úrslitakeppninni áður.“
 
Líkt og með Pálma fengum spurðum við Svein hvernig leikurinn fer á miðvikudaginn. „Við vinnum þetta. Það er enginn tilbúinn að fara í sumarfrí í mars,“ sagði Sveinn Ómar að lokum.

Mynd: Sveinn Ómar í baráttunni gegn Snæfell á dögunumÞorsteinn Eyþórsson

 
 
Fréttir
- Auglýsing -