spot_img
HomeFréttirSveinbjörn Skúlason í Skagafjörðinn

Sveinbjörn Skúlason í Skagafjörðinn

14:00

{mosimage}

Tindastólsmenn hafa fengið til liðs við sig bakvörðinn Sveinbjörn Skúlason. Sveinbjörn sem er 24 ára gamall lék með Keflavík í yngri flokkum og lék svo Njarðvík, Þór Þ. og Hetti.

Í samtali við Feykir.is segir Karl Jónsson þjálfari Tindastóls:
Sveinbirni er ætlað að styðja aðalleikstjórnanda liðsins, sem verður erlendur. Hann mun einnig bregða sér í skotbakvörðinn ef að líkum lætur. Hann er að vinna að því hörðum höndum að koma sér í sitt besta form og þá mun hann styrka liðið okkar mikið. Hann hefur áhuga á að sanna sig í úrvalsdeildinni og hérna fær hann gott tækifæri til þess að vinna í sínum málum og koma sér í gott form. Þegar hann er kominn þangað hef ég trú á að hann eigi eftir að hjálpa okkur mikið.“

[email protected]

Mynd: www.tindastoll.is

Fréttir
- Auglýsing -