spot_img
HomeFréttirSvakaleg sigurkarfa Whiteside

Svakaleg sigurkarfa Whiteside

 

Átt leikir fóru fram í NBA deildinni í nótt. Í toppslag vesturstrandarinnar höfðu Golden State Warriors sigur gegn Houston Rockets. Virkilega mikilvægur sigur fyrir Warriors, sem halda San Antonio Spurs enn 2.5 sigurleikjum frá sér í 1. sæti deildarinnar. Bæði lið að sjálfsögðu búin að tryggja sér sæti í úrslitakeppninni fyrir löngu og fara bæði mjög líklega frekar örugglega í gegnum fyrstu umferð keppninnar. Hvað varðar aðra umferð keppninnar er þó mikilvægt fyrir þá að halda þessu fyrsta sæti, því þar gefur það (mjög líklega) betri andstæðing. Sem og að sjálfsögðu heimavallarétt út úrslitakeppnina.

 

Þá sigraði eitt af spútnikliðum þessa tímabils, Miami Heat, lið Detroit Pistons með sigurkörfu frá Hassan Whiteside. Miami liðið komið flestum á óvart í vetur, eru í 8. sæti austurstrandarinnar með um 49% sigurhlutfall.

 

 

Whiteside for the win!

A post shared by Bleacher Report (@bleacherreport) on

 

 

Staðan í deildinni

 

Úrslit næturinnar:

Milwaukee Bucks 118 – 108 Charlotte Hornets

Minnesota Timberwolves 115 – 114 Indiana Pacers

Philadelphia 76ers 106 – 101 Brooklyn Nets

Phoenix Suns 91 – 95 Atlanta Hawks

Miami Heat 97 – 96 Detroit Pistons

Golden State Warriors 113 – 106 Houston Rockets

Denver Nuggets 113 – 122 Portland Trail Blazers

Washington Wizards 119 – 108 Los Angeles Lakers

Fréttir
- Auglýsing -