spot_img
HomeFréttirSunnlenskur sigur á Ísafirði

Sunnlenskur sigur á Ísafirði

 

Hamarsmenn, undir stjórn Bolvíska þjálfarans Andra Þórs Kristinssonar, gerðu góða ferð vestur á firði í kvöld er liðið mætti heimamönnum í Vestra í 1. deild karla. Vestanmenn byrjuðu þó talsvert betur og voru komnir í 22-12 eftir rúmlega sex mínútna leik. En eftir það tóku gestirnir öll völd og skoruðu 35 stig á móti 10 stigum heimamanna það sem eftir lifði fyrri hálfleiks. Áhlaupið hélt áfram í þriðja leikhluta og lokafjórðungurinn var í raun bara formsatriði. Verðskuldaður 69-92 sigur hjá Hamar.

 

 

Þáttaskil:
Hamarsmenn tóku öll völd í öðrum leikhluta á meðan heimamenn snögg kólnuðu. Hinrik Guðbjartsson, leikstjórnandi Vestra, haltraði af velli vegna meiðsla í byrjun hans og mátti Vestri engan veginn við því.
 

Tölfræðin lýgur ekki:
Hamar var með 20 stoðsendingar í leiknum á móti 5 stoðsendingum Vestra. Samspilið var talsvert betra hjá gestunum á meðan Vestri treysti meira á einstaklingsframtakið.

 

Hetjan:
Örn Sigurðsson átti stórgóðan leik fyrir Hamar og áttu Vestri engin svör við honum. Hann setti 10 af 15 skotum ofan í á leið sinni í 24 stig og tók auk þess 9 fráköst.

 

Kjarninn:
Leikmenn Vestra voru andlega fjarverandi í öðrum og þriðja leikhluta á meðan Hamarsmenn léku við hvern sinn fingur og skoruðu 56 stig á móti 24 stigum Vestra. Hamar leit vel út í leiknum og klárt mál að Andri Þór er á réttri leið með liðið.

 

Umfjöllun: Sturla Stígsson

Mynd: Sveinn Rúnar / Vestri

 

Tölfræði leiks

 

Viðtöl:

 

 

Fréttir
- Auglýsing -