spot_img
HomeFréttirSundsvall rústaði Norrköping

Sundsvall rústaði Norrköping

 
Jakob Örn Sigurðarson og Hlynur Elías Bæringsson áttu náðugt kvöld í kvöld þegar Sundsvall Dragons pakkaði Norrköping Dolphins saman í sænsku úrvalsdeildinni. Lokatölur leiksins voru 96-57 Sundsvall í vil en Norrköping telfdu fram B-liði að þessu sinni þar sem þeir hvíldu sína helstu pósta fyrir leik í Eurocup.
Hlynur gerði 16 stig í leiknum, tók 9 fráköst, stal 2 boltum og varði 1 skot. Jakob var með 13 stig, 6 stoðsendingar og 5 fráköst en eftir sigurinn er Sundsvall á toppi deildarinnar með LF Basket, bæði lið með 36 stig en Sundsvall á enn tvo leiki til góða gegn LF.
 
Logi Gunnarsson var svo stigahæstur hjá Solna Vikings í gær þegar liðið tapaði 67-68 á heimavelli gegn Södertalje Kings. Logi skoraði 16 stig í leiknum, tók 7 fráköst og gaf 2 stoðsendingar. Solna er í 6. sæti deildarinnar með 22 stig.
 
Fréttir
- Auglýsing -