Sundsvall Dragons fékk skell á heimavelli í sænsku úrvalsdeildinni í kvöld þegar Norrköping Dolphins komu í heimsókn. Lokatölur 56-76 gestina í vil en Norrköping er nú í 2. sæti sænsku deildarinnar með 16 stig, jafnmörg og Sundsvall en Norrköping með betri stöðu innbyrðis eftir kvöldið.
Hlynur Bæringsson gerði 12 stig, tók 13 fráköst og gaf 3 stoðsendingar í liði Sundsvall í kvöld. Í þeim tólf deildarleikjum sem Hlynur hefur leikið með Sundsvall þetta tímabilið er landsliðsfyrirliðinn að afkasta 14 stig, 11,3 fráköst og 2,8 stoðsendingar að meðaltali í leik.
Staðan í sænsku úrvalsdeildinni
Grundserien
Nr | Lag | M | V | F | P | PG/MP | PPM/MPPM | Hemma V/F | Borta V/F | Hemma PPM/MPPM | Borta PPM/MPPM | Senaste 5 | Senaste 10 | I rad | Hemma +/- i rad | Borta +/- i rad | JM |
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
1. | Södertälje Kings | 10 | 10 | 0 | 20 | 824/653 | 82.4/65.3 | 7/0 | 3/0 | 81.4/64.9 | 84.7/66.3 | 5/0 | 10/0 | +10 | +7 | +3 | 0/0 |
2. | Norrköping Dolphins | 11 | 8 | 3 | 16 | 864/793 | 78.5/72.1 | 6/0 | 2/3 | 81.3/73.3 | 75.2/70.6 | 4/1 | 7/3 | +3 | +6 | +1 | 3/2 |
3. | Sundsvall Dragons | 12 | 8 | 4 | 16 | 977/948 | 81.4/79.0 | 4/2 | 4/2 | 82.7/78.2 | 80.2/79.8 | 4/1 | 7/3 | -1 | -1 | +2 | 3/1 |
4. | Borås Basket | 10 | 7 | 3 | 14 | 891/824 |
|