spot_img
HomeFréttirSubasic með Njarðvík á móti FSu

Subasic með Njarðvík á móti FSu

23:19
{mosimage}

(Subasic í leik með Snæfell á síðustu leiktíð)

Slobodan Subasic verður að öllum líkindum með Njarðvík í fyrsta leik mótsins gegn nýliðum FSU annað kvöld. Samningi hans ásamt Heath Sitton og Colin O´Reilly var sagt upp á dögunum, en samningar hafa tekist á milli hans og stjórnar körfuknattleiksdeildar UMFN um að hann verði með liðinu til 1. nóvember a.m.k. Þetta kemur fram á heimasíðu Njarðvíkinga, www.umfn.is

Að sögn Sigurðar H. Ólafssonar formanns KKD UMFN, þá lýsti Subasic yfir miklum áhuga á því að leika áfram með liðinu og vinna þar með út uppsagnarfrestinn. ,,Hvað svo verður, mun einfaldlega koma í ljós enda þarf í raun að endurskoða allan reksturinn frá degi til dags á þessum ótrúlegu tímum,“ segir Sigurður á heimasíðu Njarðvíkur.

www.umfn.is

Fréttir
- Auglýsing -