Senn líður að fyrsta landsleik Íslands og Spánar en liðin eigast við núna kl. 19:00 að íslenskum tíma í fjórðu umferð B-riðils á EuroBasket í Berlín. Spánverjar eru einhver öflugasta körfuknattleiksþjóð heims en hafa átt erfitt uppdráttar hér í Þýskalandi með tapi gegn Serbum og Ítölum en eini sigur Spánverja til þessa var 104-77 kjöldráttur þeirra á Tyrkjum.
Við vitum fyllilega vel að Spánverjar ætla sér sigur gegn okkur Íslendingum í þessum leik en okkar menn hafa vakið verðskuldaða athygli fyrir baráttuna og samstöðuna í vörninni. Pau Gasol var sá eini sem mætti í vinnuna í stjörnumprýddu liði Spánar í síðasta leik og verður fróðlegt að sjá hvernig honum muni ganga með víkingana okkar.
Íslenska liðið er enn á höttunum eftir sínum fyrsta sigri í mótinu, hefst það í kvöld? Þegar stórt er spurt!
Ísland og Spánn hafa aldrei áður mæst svo þessi dagur fer í sögubækurnar sem fyrsti landsleikur þjóðanna.
Áfram Ísland!
Staðan í B-riðli
Mynd/ [email protected] – Hlynur fyrirliði Bæringsson arkar inn í Mercedes Benz Arena til að hita upp fyrir leikinn gegn Spánverjum.



