Landsliðsmaðurinn Styrmir Snær Þrastarson og félagar í Zamora höfðu betur gegn Tizona Burgos í Primera FEB deildinni á Spáni í dag, 93-101.
Styrmir hafði hægt um sig sóknarlega í leiknum og skilaði aðeins tveimur stigum á þeim 23 mínútum sem hann spilaði, við það bætti hann þó 2 fráköstum, 2 stoðsendingum og 2 stolnum boltum.
Zamora eru í 12. sæti deildarinnar eftir leikinn með 9 sigra, 2 sigrum fyrir neðan Hestia Menorca sem sitja í 8. sæti deildarinnar, en átta lið munu taka þátt í úrslitakeppni deildarinnar þegar deildarkeppni lýkur.




