spot_img
HomeÚti í heimiEvrópaStyrmir Snær atkvæðamikill gegn toppliðinu

Styrmir Snær atkvæðamikill gegn toppliðinu

Styrmir Snær Þrastarson og Belfius Mons töpuðu í kvöld fyrir toppliði Filou Oostende í BNXT deildinni í Hollandi/Belgíu, 76-85.

Á 26 mínútum spiluðum í leiknum var Styrmir Snær með 12 stig, 6 fráköst, stoðsendingu og 4 stolna bolta.

Belfius Mons eru eftir leikinn í 9. sæti belgíska hluta deildarinnar með fjóra sigra og þrettán töp á tímabilinu.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -