spot_img
HomeFréttirStúlkurnar enduðu í 5. sæti Evrópumótsins eftir sigur gegn Bretlandi

Stúlkurnar enduðu í 5. sæti Evrópumótsins eftir sigur gegn Bretlandi

Undir 18 ára stúlknalið Íslands leikur þessa dagana á b Evrópumóti í Vilníus í Litháen.

Lokaleikur liðsins á mótinu fór fram í dag, en í honum gerði Ísland sér lítið fyrir og lagði Bretland til að tryggja sér 5. sæti á mótinu, 62-56.

Atkvæðamest fyrir Ísland í leiknum var Kolbrún María Ármannsdóttir, en hún skilaði 16 stigum og 5 fráköstum. Þá bættu við Rebekka Rut Steingrímsdóttir 11 stigum, 4 stoðsendingum og Hulda María Agnarsdóttir 11 stigum og 6 fráköstum.

Tölfræði leiks

Hér fyrir neðan er upptaka af leiknum

Fréttir
- Auglýsing -