Það var boðið upp á mikla skemmtun og hátt skor í Síkinu á Sauðárkróki þegar Tindastóll tók á móti lánlausu liði Álftaness í næstsíðustu umferð Bónus deildarinnar.
Leikurinn var gríðarlega mikilvægur fyrir heimamenn sem berjast fyrir hagstæðu sæti í efri hluta deildarinnar á meðan Álftanes mætti til leiks með fimm töp í röð á bakinu og bakið upp við vegg í baráttunni um úrslitakeppni. Eftir miklar sveiflur voru það heimamenn sem reyndust sterkari á lokasprettinum og fögnuðu sigri með 115 stigum gegn 104 stigum gestanna.
Karfan spjallaði við Hjalta Vilhjálmsson þjálfara Álftaness eftir leik í Síkinu.





