HomeBónus deildinBónus deild karlaStóru skotin gilda mest – Stjarnan tekur forystuna

Stóru skotin gilda mest – Stjarnan tekur forystuna

Upphaf úrslitakeppninnar er alltaf ákveðin hátíð og það var auðvitað tilfellið þetta árið þegar ríkjandi Íslandsmeistarar Stjörnunnar tóku á móti KR. Stjörnumenn buðu upp á sérstaka upphitun á Dúllubar þar sem Gaz-mennirnir Pavel og Hlynur fóru yfir einvígið á sinn einstaka hátt.

Stemningin á pöllunum var ágæt, en ekkert í líkingu við það sem koma skal og heimamenn hefðu þess vegna getað sleppt því að setja upp færanlegu stúkuna í suðurenda hússins. Það voru helst trommuleikararnir í stúkunni Stjörnumegin sem voru í miklum gír. Fullmiklum stundum, ef þú spyrð mig. Ekkert kaffi var í blaðamannastúkunni sem var þó ágætlega skipuð eins og oftast.

Fyrri hálfleikur

Stundum er spurt hvort kom á undan, hænan eða eggið. Fréttaritara var hugsað til þessarar spurningar þegar hann reyndi að greina fyrri hálfleikinn. Hvort kom á undan: allt of margir dómar eða allt þetta væl hjá báðum liðum yfir öllum dómum? Allavega var leikurinn frekar erfiður áhorfs framan af og sérstaklega fannst heimaliðinu að mennirnir í sparibuxunum væru ekki á þeirra bandi. KR náði að stilla sig af aðeins fyrr og leiddu eftir fyrri hálfleikinn, 51–54.

Seinni hálfleikur

Seinni hálfleikur byrjaði eins og sá fyrri endaði en um miðbik leikhlutans tóku Stjörnumenn upp á því að spila boltanum örlítið lengur inn í skotklukkuna, Seth LeDay dripplaði boltanum minna og allt flæðið varð miklu betra. Þetta skilaði Stjörnunni 11 stiga forystu inn í fjórða leikhlutann sem varð eins og fjórðu leikhlutar vilja oft verða: alger barningur. KR-ingum tókst þó aldrei að ógna Stjörnumönnum almennilega í lokin. Sanngjarn sigur Stjörnunnar staðreynd.

Eftirskriftin

Það borgar sig að hitta þegar það skiptir máli.

Hilmar Henningsson átti frekar glataðan leik í alla staði framan af og lokalínan hans er ekkert sérstök. En hann mætti og setti stærstu skot leiksins, rétt eins og honum er borgað fyrir að gera.

Ægir Þór Steinarsson var eins og geitungur um allan völl. Hefur greinilega hlustað á síðasta þáttinn af Boltinn lýgur ekki þar sem hann var sagður vera með áskrift að verðlaunum sem varnarmaður ársins. Ægir átti algera stjörnuframmistöðu varnarlega og er maður leiksins að mati fréttaritara.

1–0 fyrir Stjörnuna. Sjáumst í Vesturbænum. Loksins aftur í úrslitakeppninni.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -