Hlynur Bæringsson skilaði 12 fráköstum og 7 stigum á 37 mínútum þegar lið hans Sundsvall bað ósigur á útivelli gegn liði Lulea. Sundsvall byrjaði leikinn af krafti og leiddu framan af en þegar líða tók á annan leikhluta tóku Lulea öll völd í leiknum og slepptu aldrei takinu fram til loka leiks. Hlynur skaut 14 skotum í leiknum og setti niður 6 þar af þrjá þrista. Hann setti svo niður öll þau 3 víti sem hann tók. Eftir leikinn er Sundsvall í 5. sæti deildarinnar með 4 sigra og 3 tap leiki.



