Njarðvíkurliðið mætti með 9 leikmenn á leikskýrslu í kvöld þegar ÍR-ingar mættu í Ljónagryfjuna. Á meðal þeirra sem á sjúkralista er Cameron Echols þeirra stigahæsti leikmaður. En Travis Holmes steig heldur betur upp og skoraði 54 stig og tók 11 fráköst. Líkast til hefur pilturinn verið orðin þyrstur í Gatorade-ið. 107-93 var lokastaða leiksins og ÍR liðið voru engan vegin tilbúnir þetta kvöldið.
Leikurinn var í járnum í fyrsta fjórðung eins og hugsanlega mátti búast við. Sem fyrr segir var hópur Njarðvíkinga þunnskipaður og því kannski fæstir búist við því að þeir myndu gera miklar gloríur þetta kvöldið. En þrátt fyrir það þá börðust allir leikmenn vel fyrir sínu og lögðust á eitt að sigra leikinn. Njarðvíkingar áttu hinsvegar í mesta basli með Robert Jarvis sem var sjóðheitur í fyrri hálfleik. Nýr leikmaður þeirra ÍR-inga, Rodney Alexander hafði sig hægt um framan af en átti svo eftir að láta meira á sér bera í seinni hálfleik.
58:46 var staðan í hálfleik en Njarðvíkingar tóku heljarins sprett í þriðja fjórðung þar sem Travis Holmes fór hreinlega á kostum. Kappinn var komin með 32 stig í hálfleik og virtist getað skorað af vild gegn slakri vörn ÍR.
Njarðvíkingar héldu uppteknum hætti í seinni hálfleik og héldu sinni forystu. Vörn ÍR var hriplek þrátt fyrir að þeir væru að spila hana nokkuð fast. Í kjölfarið fóru dómarar að fara í taugarnar á gestunum sem uppskáru tæknivillur fyrir. Vendipunktur hugsanlega fyrir ÍR var þegar Robert Jarvis fékk sína 5. villu snemma í þriðja fjórðung. Þá tók hinsvegar "nýji strákurinn" við keflinu en Rodney Alexander er vissulega styrkur fyrir ÍR og á hugsanlega eftir að slípa hann betur inn í leik liðsins, og þá sérstaklega varnarleikinn.
Njarðvíkingar léku við hvurn sinn fingur þetta kvöldið og allir lögðu í púkkið. Páll Kristinsson sem hóf leik að nýju með Njarðvík stóð sig með eindæmum vel þetta kvöldið. Gerði einfaldlega akkúrat það sem liðið þarf frá honum, hvorki minna hugsanlega aðeins meira. Fjarvera Cameron Echols kom hugsanlega betra flæði á sóknarleik liðsins. Ungu leikmennirnir voru töluvert hreyfanlegri og oftar en ekki voru það "inside cut" sem skiluðu þeim auðveldar körfur undir körfunni.
ÍR liðið eftir tapið er nú í 10 sæti með 12 stig en Njarðvíkingar hífðu sig upp í 7. sæti með sigrinum með 16 stig.
Njarðvík-ÍR 107-93 (25-25, 33-21, 29-25, 20-22)Njarðvík: Travis Holmes 54/11 fráköst, Elvar Már Friðriksson 14/4 fráköst/10 stoðsendingar, Páll Kristinsson 11/5 fráköst, Styrmir Gauti Fjeldsted 8/4 fráköst, Maciej Stanislav Baginski 8/4 fráköst, Oddur Birnir Pétursson 5, Ólafur Helgi Jónsson 4, Jens Valgeir Óskarsson 3, Sigurður Dagur Sturluson 0. ÍR: Rodney Alexander 42/10 fráköst/3 varin skot, Robert Jarvis 22, Níels Dungal 8/4 fráköst/5 stoðsendingar, Eiríkur Önundarson 7, Hjalti Friðriksson 6/6 fráköst, Þorvaldur Hauksson 3, Nemanja Sovic 3/5 fráköst, Ellert Arnarson 2, Friðrik Hjálmarsson 0, Húni Húnfjörð 0, Kristinn Jónasson 0.



