spot_img
HomeFréttirStórsigur Njarðvíkinga á Selfossi

Stórsigur Njarðvíkinga á Selfossi

Lið FSu tapaði stórt þegar Njarðvík kom í heimsókn í Domino's-deild karla í körfubolta í kvöld. Lokatölur urðu 82-110 og FSu er enn án sigurs í deildinni og verma botninn. Njarðvíkingar verma hinsvegar þriðja sæti deildarinnar með Þór Þorlákshöfn með 8 stig. 

 

„Þetta var mikið svekkelsi. Við vissum að þetta yrði erfiður leikur án útlendings og við hefðum þurft að spila mjög vel til að vera inni í leiknum. Ég held að þetta hafi ekki verið gæðamunur á liðinum í kvöld heldur einfaldlega skortur á trú á verkefnið hjá okkur. Við lentum tuttugu stigum undir á stuttum tíma í 2. leikhluta og vorum ekki nógu grimmir að svara fyrir okkur,“ sagði Erik Olson, þjálfari FSu, í samtali við sunnlenska.is í leikslok.

„Ef ég glugga í tölfræðina þá höfðu þeir mikla yfirburði í fráköstum og við misstum boltann of oft, þetta eru lykilatriði. En við vorum fullkomnir á vítalínunni og ef við hefðum hugsað betur um boltann þá hefði þetta getað orðið öðruvísi leikur,“ bætti Erik við.

FSu lék án Chris Anderson sem var látinn fara frá liðinu í vikunni. Chris Woods mun leysa hann af hólmi en hann kemur til landsins í vikulokin og mun væntanlega spila næsta leik liðsins, botnslag gegn Hetti á útivelli.

„Við horfum bara bjartsýnir fram á við,“ segir Erik. „Ég á von á miklu af Woods, hann hefur spilað í þrjú ár á Íslandi, með Snæfelli og Val og hefur því reynslu úr deildinni. Hann er góður drengur og fagmaður og mun strax hafa áhrif á hugarfarið hjá okkur.“

FSu byrjaði vel í leiknum í kvöld en fyrsti leikhluti var jafn og skildu þrjú stig að að honum loknum, 25-28. Þegar þrjár mínútur voru liðnar af 2. leikhluta skildu leiðir. Njarðvík gerði 24-6 áhlaup og leiddi í hálfleik, 36-57. FSu náði sér aldrei á strik eftir það og munurinn varð mestur 45 stig í upphafi 4. leikhluta.

Njarðvíkingar komu augljóslega tilbúnir til leiks og ætluðu alls ekki að láta neitt vanmat hafa áhrif á þeirra leik þetta kvöldið þar sem fyrir fram var vitað að FSu liðið yrði án erlends leikmanns og því skarð fyrir skildi.  Annar og þriðji fjórðungur leiksins sáu til þess og þá sérstaklega sóknarleikur gestana í þeim þriðja þar sem þeir settu heil 35 stig á gestgjafa sína.  Haukur Helgi Pálsson sem meiddist lítilega í síðasta leik gegn Tindastól kom sá og sigraði þetta kvöldið. 31 stig og 14 fráköst frá honum segja þá sögu til enda. 

 

FSu-Njarðvík 82-110 (25-28, 11-29, 20-35, 26-18)

FSu: Cristopher Caird 30/6 fráköst, Hlynur Hreinsson 22/5 fráköst/6 stoðsendingar, Ari Gylfason 9, Svavar Ingi Stefánsson 5/6 fráköst, Gunnar Ingi Harðarson 3/5 fráköst/6 stoðsendingar, Geir Elías Úlfur Helgason 3, Birkir Víðisson 2, Hilmir Ægir Ómarsson 2, Maciej Klimaszewski 2, Arnþór Tryggvason 2, Bjarni Geir Gunnarsson 2, 

Njarðvík: Haukur Helgi Pálsson 31/14 fráköst/6 stoðsendingar, Marquise Simmons 23/10 fráköst, Maciej Stanislav Baginski 17/5 fráköst, Logi  Gunnarsson 13, Ólafur Helgi Jónsson 8, Jón Arnór Sverrisson 5/4 fráköst, Hjalti Friðriksson 4, Hjörtur Hrafn Einarsson 4, Adam Eiður Ásgeirsson 3, Hilmar Hafsteinsson 2, 

Umfjöllun/Sunnlenska/Karfan.is
Mynd: sunnlenska.is

Fréttir
- Auglýsing -