spot_img
HomeFréttirStórsigur Litháa

Stórsigur Litháa

17:56

{mosimage}

Leikur Íslands og Litháen var að ljúka í Kaunas í Litháen og voru heimamenn miklu sterkari í leiknum.

Staðan eftir fyrsta leikhluta var 30:19 en Litháar áttu eftir að bæta vel í og höfðu góða forystu í hálfleik 61:35.


Litháar sýndu áfram styrk sinn í seinni hálfleik og áttu strákarnir okkar erfitt uppdráttar gegn líkamlega sterkum og stórum leikmönnum heimamanna.

Lokatölur leiksins urðu 115:62.

Helgi Magnússon var stigahæstur með 14 stig, Jakob Sigurðarson setti 10 stig og tók 6 fráköst, Hreggviður Magnússon skoraði 8 stig og þeir Hlynur Bæringsson og Sigurður Þorvaldsson skoruðu 7 stig og Hlynur tók auk þess 8 fráköst.

Ef tölfræðin er skoruð er ljóst að við verðum að gera betur í fráköstum og stoðsendingum en Litháar tóku 52 fráköst gegn 36 fráköstum frá okkur og þeir gáfu 27 stoðsendingar en við einungis 6.

Skotnýting Litháa inn í teig var 62% gegn 38% hjá okkur. Litháar eru mjög hávaxnir og það gekk erfiðlega að skora undir körfunum.

Liðin mætast aftur á þriðjudaginn í Vilnius.

Þetta er hins vegar frábært tækifæri fyrir okkur að spila gegn svona sterku liði og kemur okkur vonandi til góða í baráttunni í haust í Evrópukeppninni.

Leikurinn var sjöundi leikur þjóðanna frá upphafi og hafa Íslendingar aðeins unnið einu sinni, í Reykjavík í janúar 1992.

Liðin mætast svo aftur á þriðjudag í Vilnius.

www.kki.is

 

Mynd: [email protected]

Fréttir
- Auglýsing -