HomeFréttirStórsigur hjá Maryland á útivelli

Stórsigur hjá Maryland á útivelli

 
Haukur Helgi Pálsson lék í níu mínútur aðfararnótt fimmtudags þegar Marylandháskólinn gerði góða ferð til Virginia. Lokatölur í leiknum voru 66-42 Maryland í vil sem nú hefur unnið tvo leiki í röð í ACC riðlinum.
Á þessum níu mínútum í leiknum fékk Haukur eina villu og brenndi af einu teigskoti en meira var það ekki að þessu sinni. Maryland verða svo aftur á ferðinni í kvöld þegar liðið mætir Georgia Tech á útivelli.
 
Eftir leikinn í kvöld kemur svo þrír heimaleikir í röð og eru þeir af stærri endanum hjá Maryland þegar liðið tekur á móti Duke, Wake Forest og Longwood.
 
Fréttir
- Auglýsing -