HomeÚti í heimiEvrópaStórleikur í vændum: 16-liða úrslit ENBL í Síkinu

Stórleikur í vændum: 16-liða úrslit ENBL í Síkinu

Tindastóll heldur vegferð sinni áfram í Evrópu og mætir Riga Zelli frá Lettlandi miðvikudaginn 11. mars. Þar sem Tindastóll endaði í 6. sæti í deildarkeppninni á liðið heimaleik í þessum mikilvæga útsláttarleik.

Fyrirkomulag keppninnar er þannig að sigurliðið fer beint í 8-liða úrslit þar sem leikið er heima og að heiman, en úrslitahelgin (Final Four) fer svo fram á einum stað með svipuðu sniði og Bikarvika KKÍ. Hamborgarasala, flott skemmtiatriði og ómótstæðileg stemming verður í Síkinu og hvetur Karfan alla til að gera sér ferð á leikinn.

Fréttir
- Auglýsing -