Einn leikur fer fram í Domino´s deild karla í kvöld en þá eigast við Snæfell og Grindavík í Stykkishólmi kl. 19:15. Ríkjandi meistarar síðustu tveggja ára, Grindavík, eru með 6 stig í 4. sæti deildarinnar en Hólmarar eru í 9. sæti með 2 stig.
Eftir viðureign liðanna í kvöld munu öll lið hafa lokið fimm umferðum í deildinni. Tvö lið eru á toppnum, KR og Keflavík, en þau eru einu liðin í deildinni sem ekki hafa tapað leik til þessa.
Grindvíkingar hafa unnið tvo síðustu deildarleiki sína í Stykkishólmi en Snæfell lagði Grindavík síðast í Hólminum þann 11. nóvember 2011 en lokatölur þessa leiks voru 79-71 Snæfell í vil.
Mynd/ Axel Finnur – Stefán Karel og Hólmarar fá Grindavík í heimsókn í kvöld.




