Elvar Már Friðriksson dró vagninn og var stigahæstur á vellinum þegar Neptunas tryggði sér afar dýrmætan 93:89 heimasigur gegn Bourg í C-riðli EuroCup í Litáen í kvöld.
Íslenski landsliðsbakvörðurinn lét mikið að sér kveða á þeim 27 mínútum sem hann spilaði; skoraði 25 stig ásamt því að taka þrjú fráköst og gefa þrjár stoðsendingar.
Þetta reyndist jafnframt fyrsti sigur Neptunas í keppninni á tímabilinu, en liðið er nú með tvö stig í næstneðsta sæti C-riðilsins.




