Tryggvi Snær Hlinason fór hreinlega á kostum þegar lið hans, Bilbao, tryggði sér afar dýrmætan sigur gegn stórliði Real Madrid í spænsku úrvalsdeildinni í dag.
Miðherjinn var atkvæðamesti maður vallarins í þessum óvænta 88:82 sigri, en hann skoraði 22 stig og tók sjö fráköst á þeim tæpu þrjátíu mínútum sem hann spilaði.
Sigurinn dugar Bilbao til að sitja áfram í áttunda sæti deildarinnar með 34 stig, en þegar þrjár umferðir eru eftir af deildarkeppninni stefnir liðið beina leið í úrslitakeppnina.



