Í kvöld fór fram þriðji leikurinn í viðureign Vals og Keflavíkur. Staðan fyrir leikinn var 1–1 og því var hann mjög mikilvægur upp á að ná frumkvæði í einvíginu.
Fyrri leikir þessara liða hafa verið jafnir og spennandi og því mátti búast við hörkuleik í kvöld. Það reyndist síðan eftir gangi leiksins: allir leikhlutarnir voru jafnir og skemmtilegir. Síðasti leikhlutinn var hnífjafn en Valur skoraði sigurkörfuna þegar aðeins 0,4 sekúndur voru eftir.
Karfan spjallaði við Finn Frey Stefánsson þjálfara Vals eftir leik í N1 höllinni.




