spot_img
HomeFréttirStóri bróðir fékk á lúðurinn: Fjórir reknir úr húsi

Stóri bróðir fékk á lúðurinn: Fjórir reknir úr húsi

 
Tveir leikir fóru fram í NBA deildinni í nótt þar sem bræðrabylta var í Staples Center þegar Los Angeles liðin Lakers og Clippers áttust við. Þá unnu San Antonio Spurs sinn sjötta leik í röð í NBA deildinni þegar Denver Nuggets komu í heimsókn.
LA Clippers 99-92 LA Lakers
Clippers voru skráðir á heimavöll að þessu sinni en bæði þessi lið hafa Staples Center sem heimavöll. Eric Gordon fór mikinn í liði Clippers með 30 stig og Blake Griffin lét sitt ekki eftir liggja í tvennudeildinni með 18 stig og 15 fráköst. Þetta var í tuttugasta og sjötta skiptið í röð sem Griffin landar tvennu! Kobe Bryant var stigahæstur hjá Lakers með 27 stig og 9 fráköst og næstur í röðinni var Andrew Bynum með 18 stig og 13 fráköst. Með sigri Clippers í nótt var bundinn endi á sjö leikja sigurgöngu Lakers.
 
Engin er bræðrabyltan nema upp úr sjóði og í síðari hálfleik fengu fjórir að fjúka þegar Lakers reyndu að koma beljakanum Blake Griffin á hálan ís. Þar voru æsingamennirnir Ron Artest og Lamar Odom fremstir í flokki en mættur á milli turnanna var Baron Davis og fengu þeir þrír ásamt Griffin allir að fjúka af velli fyrir háttalag sitt. Þetta kom ekki að sök þar sem innan við hálf mínúta var til leiksloka og Clippers lönduðu því öruggum sigri.
 
San Antonio 110-97 Denver Nuggets
Tony Parker var í stuði hjá Spurs í nótt með 30 stig og 7 fráköst, Argentínumaðurinn Manu Ginobili bætti við 18 stigum og 7 stoðsendingum. Hjá Denver var Al Harrington stigahæstur með 18 stig af bekknum á rúmum 22 mínútum.
 
Mynd/ Eric Gordon fann sig vel gegn stóra bróður í nótt.
 
Fréttir
- Auglýsing -