Landsliðsmaðurinn Styrmir Snær Þrastarson og félagar í Zamora lögðu Melilla í Primera FEB deildinni á Spáni í dag, 97-88.
Styrmir Snær var stigahæstur í liði Zamora í leiknum, með 18 stig, 2 fráköst og 2 stoðsendingar á 23 mínútum spiluðum í leiknum.
Zamora eru eftir leikinn í 4. sæti deildarinnar með 22 stig, 5 stigum fyrir neðan Leyma Coruna sem eru í efsta sætinu með 27 stig.




