Nú um nýliðna helgi fóru fram bikarúrslit yngriflokka og í þetta skiptið var það haldið í Grindavík. Það voru tár, bros og Nike körfuboltaskór alla helgina í Röstinni og Karfan.is óskar öllum þeim liðum sem komust í úrslit til hamingju með árangurinn. Einnig viljum við þakka Grindvíkingum fyrir stórglæsilega helgi og gestrisni. Framkvæmdin á helginni fær hæstu einkunn og því bar að hrósa.
Leikirnir frá helginni voru allir teknir upp á vídeo og nú er hægt að nálgast þá með því að senda póst á [email protected] og taka fram hvaða leik er óskað eftir. Hver leikur kostar 1500 kr.
Unglingaráð UMFG vildi svo þakka öllum þeim leikmönnum, starfsmönnum ,áhorfendum og öðrum gestum fyrir frábæra bikarhelgi.



