HomeBónus deildinBónus deild kvennaStórfiskur í net KR: Sara Rún semur við Stórveldið

Stórfiskur í net KR: Sara Rún semur við Stórveldið

KR hefur fengið gríðarlegan liðsstyrk fyrir komandi tímabil í Bónus deild kvenna því landsliðskonan Sara Rún Hinriksdóttir hefur söðlað um og samið við félagið. Sara Rún kemur til KR frá bikarmeisturum Keflavíkur, en hún er án efa einn allra sterkasti leikmaður deildarinnar og algjör lykilmaður í íslenska landsliðinu. Hér er um að ræða stóran samning fyrir Vesturbæinga sem ætla sér greinilega stóra hluti á næsta keppnistímabili. Koma hennar á Meistaravelli sendir skýr skilaboð til hinna liðanna í deildinni og ljóst er að reynsla hennar og gæði eiga eftir að lyfta leik KR upp á hærra plan.

Það er þó fleira að frétta úr Vesturbænum því KR-ingar hafa einnig endurheimt Emmu Sóldísi Svan Hjördísardóttur, sem snýr aftur í svart og hvítt eftir að hafa leikið með sameinuðu liði Hamars og Þórs. Emma þekkir vel til hjá félaginu og kemur til með að auka breiddina og samkeppnina í leikmannahópnum. Þá eru þetta kærkominn endurfundir fyrir stuðningsmenn liðsins sem fá þarna öflugan leikmann til baka í baráttuna.

Auk þess að sækja nýja leikmenn leggur KR ríka áherslu á að halda sínum efnilegustu kröftum og hefur félagið framlengt samninginn við ungstirnið Rebekku Rut Steingrímsdóttur. Rebekka þykir mikið efni og sýndi það og sannaði á síðasta tímabili að hún á fullt erindi í efstu deild. Með því að tryggja krafta hennar áfram, samhliða komu Söru og Emmu, hefur KR lagt traustan grunn að liði sem stuðningsmenn geta farið að hlakka mikið til að fylgjast með í vetur.

Fréttir
- Auglýsing -