Keflvíkingar tóku á móti Haukum í íþróttahúsinu við Sunnubraut í kvöld í öðrum leik liðanna í 8 liða úrslitum Domino´s deildar karla. Haukarnir unnu fyrstu viðueign liðanna sannfærandi á Ásvöllum og ljóst að Keflvíkingar yrðu að leggja allt í sölurnar til að eiga möguleika í einvíginu.
Keflvíkingar komu geysilega einbeittir til leiks, buðu uppá hreyfanlega svæðisvörn og komust í 12- 7 og 25 – 14 áður en Ívar bað um leikhlé fyrir sína menn. Guðmundur Jónsson var magnaður á fyrstu 8 mínútunum og skoraði 12 stig, stal boltum í tvígang sem leiddu til auðveldra stiga og var grimmur í varnarleiknum eins og allt byrjunarlið heimamanna. Haukarnir virtust hreinlega slegnir niður og fóru fljótt að sýna pirring og uppskáru óíþróttamannslega villu og tæknivillu í leikhlutanum. Heimamenn leiddu með 10 stigum að honum loknum, 27-17.
Það var mikill hiti í mönnum áfram í 2. leikhluta. Haukarnir náðu að að saxa forskot Keflvíkinga niður í 6 stig á fyrstu 5 mínútunum. Paul Anthony Jones var beittur í sókn Haukanna ásamt Kára Jónssyni þurfti að hafa fyrir því að komast að körfunni gegn þéttri vörninni. Téður Paul A. Jones lenti svo í orðaskaki við Ágúst Orrason með þeim afleiðingum að sjóðheitur Guðmundur Jónsson lét Jones finna fyrir nærveru sinni. Ágætt dómaratríó leiksins fékk að líta á atvikið aftur og úr varð tæknivilla á hvort lið auk þess sem Guðmundur uppskar óíþróttamannslega villu. Liðin skiptust á rispum þar sem Magnús Traustason og Reggie Dupree komu muninum aftur í 10 stig, 44-34, í einum hvelli. Finnur Atli Magnússon tók að sér að eiga síðasta orðið í hálfleiknum og Haukarnir náðu að minnka bilið niður í 3 stig fyrir hálfleik. 44-41. Keflvíkingar gátu verið ósáttir við sjálfa sig að vera ekki með meira forskot þar sem stemmningin var öll þeirra megin.

Atkvæðamestir í hálfleik
Keflavík
Guðmundur Jónsson (15 stig, 2 stolnir, 2 fráköst)
Magnús Már Traustason (9 stig, 2 fráköst)
Hörður Axel Vilhjálmsson (8 stig, 2 fráköst, 2 stoðsendingar, 2 stolnir)
Haukar
Paul Anthony Jones (15 stig, 9 fráköst, 2 stoðsendingar)
Kári Jónsson (11 stig, 3 fráköst, 4 stoðsendingar)
Finnur Atli Magnússon (8 stig, 6 fráköst, 2 blokk)
Christian Dior Jones hefur fengið skriflega áminningu frá þjálfarateymi Keflvíkinga að vinsamlegast mæta í vinnuna í seinni hálfleik en kappinn var stigalaus í fyrri hálfleiknum. Hann bætti úr því með því að setja fyrstu 7 stig heimamanna í þeim síðari, þar af hreint hrottalega "hollí-hú" afgreiðslu eftir sendingu frá Herði Axeli sem kveikti bál í kofanum. Guðmundur Jónsson skellti svo niður rennblautum þrist til að lyfta muninum í 12 stig, 54-42 en Haukarnir skoruðu ekki körfu utan af velli fyrstu 6 mínúturnar í leikhutanum gegn ógnarsterkri og hrefanlegri vörn heimamanna. Hörður Axel var að leika virkilega vel og mataði félaga sína stoðsendingum og fyrir síðustu 10 mínúturnar var munurinn kominn í 15 stig, 66-51, og heimamenn með tögl og hagldir á leiknum.
Haukarnir hentu sér í svæðisvörn í byrjun 4. leikhluta til að reyna að að koma Keflvíkingum úr jafnvægi. Þriggja stiga skotin fóru að detta og Kári Jónsson minnkaði muninn niður í 6 stig eftir aðeins þriggja mínútna leik og mómentið að snúast gestunum í hag. Keflvíkingar virtust ráðlausir og þegar Haukur Óskarsson minnkaði muninn í 1 stig með skoti úr teignum var farið að fara verulega um stuðningsfólk Keflvíkinga í stúkunni sem sáu 15 stiga forystu hverfa á augabragði.

Lokaspretturinn var hreint magnaður þar sem Hörður Axel og Kári Jónsson skiptust á að koma sínum liðum yfir. Haukarnir unni boltann þegar 21 sekúnda var eftir af leiknum og einu stigi undir. Paul Anthony Jones réðist að körfunni þegar 15 sekúndur lifðu leiks og reyndi erfitt og ótímabært skot sem geigaði og Haukarnir neyddust til að brjóta. Hörður Axel bætti við tveimur stigum af línunni og lögðu Haukarnir af stað í sína lokasókn til að reyna að jafna leikinn. Kári Jónsson reyndi að koma sér í þriggja stiga færi og kom upp erfiðu skoti gegn 2 varnarmönnum. Dómarar leiksins dæmdu Reggie Dupree brotlegan og sendi Kára á línuna í þrjú skot þegar 3 sekúndur voru eftir. Kári svitnaði ekki þegar hann smellti öllum þremur vítunum niður. Keflvíkingar höfðu því 3 sekúndur til að koma skoti á körfuna og tryggja sér sigur. Til stóð að henda boltanum beint upp á Christian Dior Jones undir körfunni, Haukarnir komust inn í boltann sem datt dauður niður í teiginn þar sem Kári Jónsson náði til hans og grýtti honum yfir 3/4 af vellinum og beinustu leið ofan í körfuna! 82- 85 lokatölur og Haukarnir töfra fram sigur á síðasta andartaki leiksins og komast í 2-0 í einvíginu.
Atkvæðamestir í leiknum
Keflavík
Guðmundur Jónsson (23 stig, 4 stolnir, 3 fráköst)
Hörður Axel Vilhjálmsson (15 stig, 7 stoðsendingar, 4 fráköst)
Christian Dior Jones (12 stig, 6 fráköst)
Haukar
Kári Jónsson (27 stig, 8 stoðsendingar, 5 fráköst)
Paul Anthony Jones (24 stig, 12 fráköst, 3 stoðsendingar)
Haukur Óskarsson (15 stig )
Í hnotskurn
Frábær karakterssigur fyrir Haukana en að sama skapi grátlegt fyrir Keflvíkinga. Þeir spila sennilega sína bestu 3 leikhuta í vetur þar til kemur að þeim fjórða þar sem allt hrekkur í baklás. 15 stigum yfir, mikið svægi í leikmönnum og vörn og sókn að smella saman. Haukarnir eiga risahrós skilið fyrir að leggja ekki árar í bát og geta svo þakkað sínum besta manni, Kára Jónssyni, fyrir þennan stórbrotna sigur í lokin. 3 stigum undir þegar 13 sekúndur eru eftir og maðurinn setur liðið á herðarnar og klárar leikinn með körfu sem er nú þegar orðin klassík. Það eru til mörg eftirminnileg atvik í sögu íþróttahússins við Sunnubraut. Þetta ratar beint á topp 3 listann með Rodney Dobart og sýningu 1997 liðs Keflavíkur það tímabilið.
Besti maður vallarins
Kári Jónsson. Óþarfi að segja meira.
Guðmundur Jónsson átti sinn besta leik í vetur og mögulega síðustu 2-3 ár. Svekkjandi fyrir þennan mikla stríðsmann að geta ekki klárað þennan með sigri. Dró Keflavíkurvagninn frá fyrstu mínútu og leiddi með fordæmi.

Framhaldið
Því miður fyrir Keflvíkinga er erfitt að sjá neitt annað en að Haukarnir séu búnir að leggja grunninn að sigri í einvíginu. Keflavík hitti á góðan dag og spiluðu vel í 30 mínútur, sennilega betur en þeir hafa gert í allan vetur. Þeir verða að eiga 12 slíka leikhluta í röð til að leggja Haukana. Bæði Keflavík og Haukar eru einu liðin í sögu Íslandsmótsins til að koma til baka eftir að hafa verið 0-2 undir í seríu svo allt getur tæknilega gerst. Það verður þó erfitt að sjá Keflvíkinga mótivera sig upp í leik 3 eftir annað eins "heart-break".
Skemmtilegt atvik
Einstakt atvik átti sér stað í fyrri hálfleik þegar Reggie Dupree gerði sig líklegan til að keyra að körfunni en steig útaf og var réttilega flautað og dæmdur af honum boltinn. Reggie hins vegar heldur áfram að keyra undir körfuna og fer í "up-and-under" sniðskot sem Kristján Leifur Sverrisson reynir að verja. Hann brýtur á Reggie og uppsker óíþróttamannslega villu. Keflvíkingar skjóta 2 vítum og fá boltann aftur.
Til að summa þetta upp: Á innan við tveimur sekúndum tókst Reggie Dupree að tapa boltanum þannig að leikurinn var stoppaður og vinna hann svo aftur án þess að leikurinn var flautaður á aftur. Skemmtilegt og sennilega verið reykistefna á ritaraborðinu við afgreiðslu þessa máls.

Viðtöl eftir leik: (Væntanlegt)
Umfjöllun / Sigurður Friðrik Gunnarsson
Myndir / Davíð Eldur




