spot_img
HomeFréttirStóra Dwight Howard málið - Þjálfari KR gerir grín að málinu

Stóra Dwight Howard málið – Þjálfari KR gerir grín að málinu

 Enn eru miklar vangaveltur um það hvert Dwight Howard fari.  Brooklyn Nets, LA Lakers, LA Clippers, Houston og nú nýlega hefur heimaborg hans Atlanta bæst í hópinn.  Eitt er þó víst að þetta ferli fer að slá við "The Decision" sem að Lebron James gerði frægt hér um árið. 
 Líklegast telja fjölmiðlar vestra að kappinn endi í "rússaveldi" Brooklyn Nets þar sem að fjöldi manna mun skipta á milli margra liða.  Næstu lið sem nefnd voru gátu miðlar ekki sagt um hverjir hafa forystuna fram yfir annað í því að ná undirskrift miðherjans. 
 
Hrafn Kristjánsson þjálfari KR hefur gert grín af þessu máli óspart á Facebook síðu sinni þar sem hann segir að síðustu fregnir hermi að 17 NBA lið, 5 NFL lið, 2 MLB lið og einn Jónas bróðir munu koma til með að kom að þessum skiptum hjá Dwight Howard. 
 
Mynd/ Howard að planka…
Fréttir
- Auglýsing -