spot_img
HomeFréttirStór sigur Skallagríms á Njarðvík

Stór sigur Skallagríms á Njarðvík

 

Skallagrímur sigraði nýliða Njarðvíkur í gærkvöldi með 85 stigum gegn 52. Eftir leikinn er Skallagrímur því í 2.-3. sæti deildarinnar ásamt Snæfell á meðan að Njarðvík eru í 4.-5. sæti deildarinnar ásamt Stjörnunni.

 

Þrátt fyrir stóran sigur Skallagríms voru það gestirnir frá Njarðvík sem að byrjuðu leikinn ögn betur. Leiddu eftir fyrsta leikhluta með 15 stigum gegn 11 heimstúlkna. Strax í öðrum leikhlutanum tóku heimastúlkur þó við sér. Unnu annan leikhlutann 26-8 og fóru því með 14 stiga forystu til búningsherbergja í hálfleik, 41-19. 

 

Í byrjun seinni hálfleiksins héldu þær svo áfram þaðan sem frá hafði verið horfið. Héldu áfram að byggja upp forskot sitt. Voru komnar með 29 stiga forskot fyrir lokaleikhlutann, 59-30. Eftirleikurinn var því frekar auðveldur fyrir lið Skallagríms. Sigruðu leikinn að lokum með 33 stigum, 85-52.

 

Framlagshæst fyrir heimastúlkur var Tavelyn Tillman, en hún skoraði 26 stig, tók 7 fráköst og gaf 7 stoðsendingar á þeim 26 mínútum sem hún spilaði. Fyrir gestina var María Jónsdóttir framlagshæst, en hún skoraði 9 stig og tók 9 fráköst á þeim 20 mínútum sem hún spilaði.

 

Myndasafn 

 

Tölfræði leiks

 

Mynd / Ómar Örn Ragnarsson

 

Fréttir
- Auglýsing -