Tindastóll tók á móti Ármanni í Bónus deild karla í körfuknattleik í Síkinu á Sauðárkróki í kvöld. Stólarnir hafa verið í lægð í deildinni en náðu vopnum sínum með góðum sigri gegn Bussels í ENBL deildinni á þriðjudag. Lánið leikur ekki við Ármenninga í vetur og þeir mættu á Krókinn án Brandon Averett sem handarbrotnaði um daginn. Það eru ekki margir leikir í þessari deild þar sem hægt er að tala um skyldusigra en þegar botnliðið kemur kanalaust í heimsókn þá gera heimamenn í stúkunni skilyrðislaust kröfu um sigur.
Leikurinn fór jafnt af stað og Stólarnir virkuðu áhugalausir, einkum í varnarleiknum. Það skilaði sér í aukinni ákefð gestanna sem skynjuðu vanmatið og gengu á lagið. Ármann leiddi lengi vel eftir góðan sprett úr stöðunni 12-6 en heimamenn skutust aftur framúr en jafnt var eftir fyrsta leikhluta 24-24. Svipað var uppi á teningnum í öðrum leikhluta, Stólar nenntu hreinlega ekki að spila vörn og voru að klikka úr auðveldum færum. Ármenningar gengu á lagið og héldu leiknum í járnum fram í hálfleik 54-54. Hreinlega ekki boðleg frammistaða hjá Stólum að hleypa botnliðinu í 54 stig í fyrri hálfleik.
Sem betur fer fyrir heimamenn breyttist þetta í þriðja leikhluta og þeir fóru að sýna talsvert meiri áhuga á því að stoppa gestina sem skilaði sér í körfum hinumegin. Þriðji leikhluti byrjaði með 22-8 kafla hjá Stólum sem voru þá komnir 14 stigum yfir og litu ekki um öxl eftir það þó Ármann krafsaði aðeins í muninn. Í fjórða leikhluta hélt munurinn áfram að aukast og það endaði með því að heimamenn lönduðu öruggum 113-76 stiga sigri, fengu aðeins á sig 22 stig í seinni hálfleik.
Hjá Stólum var Basile stigahæstur með 27 stig og Taiwo bætti 23 við og tók 7 fráköst. Pétur Rúnar var með 12 stig og 8 fráköst og allir leikmenn Stóla á skýrslu náðu að setja stig á töfluna. Hjá gestunum voru Bragi og Arnaldur með 14 stig hvor.




