Tindastóll tryggði sér í dag bronsverðlaun í Árborg sk 88 mótinu með sigri gegn KR í Borgarnesi, 76-82, en fyrr í dag hafði Stjarnan unnið Hött í úrslitaleik mótsins.
Stigahæstur í liði Tindastóls í dag var Þórir Guðmundur Þorbjarnarson með 30 stig, en honum næstir voru Adomas Drungilas með 14 stig og Ragnar Ágústsson með 9 stig.
Fyrir KR voru Troy Cracknell og Friðrik Anton Jónsson báðir með 16 stig og Adama Darboe bætti við 15 stigum.
Ert þú með fréttir af æfingaleik? Endilega sendið tölfræðiskýrslu eða myndir á [email protected].