Tindastóll hefur samið við argentínsku landsliðskonurnar Florenciu Chagas og Macarenu Durso fyrir komandi tímabil. Báðar eru með evrópskt vegabréf og þekkjast vel úr landsliðinu.
Florencia er öflugur bakvörður sem á að baki alþjóðlega reynslu og var meðal annars valin í nýliðavali WNBA. Macarena er reynslumikill og hraður leikstjórnandi sem lék síðast á háu stigi á Spáni.
Israel Martin, þjálfari liðsins, fagnar komu þeirra og segir Florenciu fjölhæfan skorara sem eigi eftir að hafa mikil áhrif á deildina. Macarenu lýsir hann sem sterkri varnarkonu og góðri skyttu sem muni passa vel inn í íslenska boltann. Hann telur það mikinn styrk fyrir Tindastól að fá þær báðar í Síkið.




