Körfuknattleikssamband Íslands hefur sektað Tindastól um 50 þúsund krónur eftir að áhorfandi kastaði flösku í átt að dómara í leik liðsins gegn Stjörnunni nýverið.
Nefndin gerði athugasemd við að gæsla á vellinum hefði ekki brugðist við atvikinu. Þá þarf Einar Árni Jóhannsson, þjálfari Njarðvíkur, sömuleiðis að greiða 50 þúsund krónur í sekt, en hann hefur safnað átta tæknivillum á yfirstandandi tímabili.






