Tindastóll er kominn í kjörstöðu í úrslitakeppni Bónus deildarinnar eftir góðan sigur á ÍR í kvöld og leiðir einvígið nú 2-0.
Á sama tíma tókst Val að jafna metin gegn Keflavík í hörkuleik og er staðan þar 1-1. Spennan magnast fyrir næstu leiki sem fram fara á laugardaginn, en liðin þurfa að vinna þrjá leiki samtals til að tryggja sér sæti í undanúrslitum.




