spot_img
HomeBónus deildinBónus deild kvennaStólarnir inn í seinni hluta deildarkeppninnar með tvo sigra í röð

Stólarnir inn í seinni hluta deildarkeppninnar með tvo sigra í röð

Tindastóll sótti dýrmæt stig í Laugardalshöllina í kvöld þegar liðið lagði Ármann að velli, 59–78, í 18. umferð Bónus deildar kvenna. Leikurinn var sá síðasti fyrir skiptingu deildarinnar í efri og neðri hluta, en ljóst var fyrir leik að bæði þessi lið myndu heyja sína baráttu í neðri hlutanum á lokaspretti tímabilsins. Þrátt fyrir að staðan í deildinni væri ráðin, var mikið undir fyrir sjálfstraust beggja liða að fara inn í seinni hlutann með sigur í farteskinu.

Gestirnir að norðan mættu ákveðnari til leiks. Tindastóll byrjaði af krafti og náði að setja tóninn strax í fyrsta leikhluta. Vörnin var þétt og heimakonur í Ármanni áttu erfitt með að finna opin skot, sem skilaði Tindastóli sjö stiga forystu, 12–19, eftir fyrstu tíu mínúturnar. Þegar annar leikhluti hófst virtist hins vegar allt ætla að breytast. Ármann sýndi sínar bestu hliðar og hreinlega keyrði yfir gestina. Heimakonur unnu fjórðunginn með fjórtán stiga mun, 26–12, og fóru því með forystu inn í búningsklefana í hálfleik. Á þeim tímapunkti virtist Ármann vera með öll völd á vellinum.

Seinni hálfleikurinn var hins vegar önnur saga. Tindastólskonur mættu dýrvitlausar til leiks og sýndu af hverju liðið getur verið stórhættulegt. Vörnin þeirra small saman á þann hátt að nánast lokaðist fyrir allar leiðir Ármanns að körfunni. Þessi stórkostlega varnarvinna skilaði sér í mörgum stolnum boltum og auðveldum körfum hinum megin. Tindastóll vann þriðja leikhluta með afgerandi hætti, 6–21, og sneri taflinu algjörlega sér í vil. Þetta áhlaup sló Ármenninga út af laginu og liðið náði aldrei að svara fyrir sig af viti eftir þetta.

Í fjórða leikhluta hélt Tindastóll uppteknum hætti. Þær héldu áfram að passa boltann vel og skotnýtingin var til fyrirmyndar, á meðan sóknarleikur Ármanns var stirður. Gestirnir unnu fjórðunginn 15–26 og sigldu öruggum 19 stiga sigri í höfn. Maddie Sutton var sem fyrr gríðarlega öflug fyrir Tindastól og skilaði öflugri tvennu með 21 stigi og 13 fráköstum. Marta Hermida fór hins vegar fyrir stigaskorun gestanna með 24 stig og 9 fráköst, en hún fann reglulega glufur á vörn Ármanns sem virtist vera orðin ráðalaus þegar leið á leikinn.

Hjá Ármanni var frammistaðan frekar slöpp þegar á heildina er litið, sérstaklega í seinni hálfleiknum. Dzana átti þó fínan leik með 16 stig og Sylvía Rún Hálfdánardóttirr barðist vel með 12 stig og 10 fráköst. Það sem háði heimakonum mest var hins vegar skelfilegur dagur hjá atvinnumönnum liðsins. Sérstaklega var það Kylie Savannah Kornegay-Lucas sem átti erfitt uppdráttar, en hún nýtti aðeins 1 af 14 skotum sínum utan af velli, sem er tölfræði sem liðið þolir hreinlega ekki í svona mikilvægum leikjum.

Nú þegar deildin skiptist upp er ljóst að þessi lið munu mætast aftur í neðri hlutanum. Þótt leikjaniðurröðun sé ekki klár, þá gefur þessi leikur Tindastóli mikið forskot í andlegu hliðinni fyrir næstu rimmu. Ármann þarf að nýta tímann vel í að þétta raðirnar og finna taktinn hjá sínum lykilmönnum ef þær ætla að snúa þessu við þegar liðin mætast á nýjan leik.

Tölfræði leiks

Ármann: Dzana Crnac 16/7 fráköst, Sylvía Rún Hálfdanardóttir 12/10 fráköst/3 varin skot, Nabaweeyah Ayomide McGill 9/9 fráköst, Jónína Þórdís Karlsdóttir 9/6 fráköst/6 stoðsendingar, Kylie Savannah Kornegay-Lucas 6/9 fráköst, Ragnheiður Björk Einarsdóttir 4, Aníka Linda Hjálmarsdóttir 3, Ísabella Lena Borgarsdóttir 0, Þóra Birna Ingvarsdóttir 0, Auður Hreinsdóttir 0, Rakel Sif Grétarsdóttir 0, Cirkeline Sofie Mehrenst Rimdal 0.


Tindastóll: Marta Hermida 24/9 fráköst, Madison Anne Sutton 21/13 fráköst/5 stoðsendingar, Oceane Kounkou 21/5 fráköst, Emma Katrín Helgadóttir 4, Roselis Silva 3/4 fráköst, Eva Run Dagsdottir 3, Inga Sólveig Sigurðardóttir 2, Brynja Líf Júlíusdóttir 0/4 fráköst, Anna Karen Hjartardóttir 0, Rannveig Guðmundsdóttir 0.

Fréttir
- Auglýsing -