HomeBónus deildinBónus deild karlaStólarnir halda heimavallarréttinum

Stólarnir halda heimavallarréttinum

Tindastóll tók á móti ÍR í fyrstu umferð úrslitakeppni Bónus deildar karla í körfuknattleik í Síkinu á Sauðárkróki í kvöld. Liðin úr 2. og 7. sæti að mætast og alvöru playoffs stemning í Síkinu

Gestirnir hófu leikinn af krafti og voru komnir í 0-7 eftir eina og hálfa mínútu áður en heimamenn vöknuðu og eftir eina og hálfa mínútu í viðbót var staðan orðin 10-9 fyrir Stóla. Lofaði góðu fyrir framhald leiksins. Stólar virtust vanmeta andstæðingana örlítið í byrjun en það var fljótt að jafna sig og þetta varð leikur tveggja hörkuliða. Stólar enduðu á að taka fyrsta leikhlutann 26-24 eftir góða lokasókn og geggjaðan þrist frá Pétri Rúnari. Annar leikhluti var jafn en heimamenn voru skrefinu á undan og leiddu með 7 stigum í hálfleik 54-47. 

Tölfræði leiksins

Gestirnir úr Breiðholtinu komu ákveðnir til leiks í seinni hálfleik eftir geggjaða troðslu frá Falco í lok þess fyrri. Minnkuðu muninn í 4 stig en Stólar rykktu aftur frá, náðu 9 stiga forystu en ÍR-ingar ólseigir komu til baka og Tómas Orri minnkaði muninn í eitt stig um miðjan leikhlutann með þrist. Júlli svaraði með andone play og gaman að fylgjast með þessum tveimur kljást. Staðan 78-77 fyrir lokaátökin.  Heimamenn komu á spretti út í síðasta fjórðunginn og sigldu í 10 stiga mun áður en gestirnir náðu að svara. Troðsla og þristur frá Drungilas og Síkið ærðist. Falco náði að minnka muninn í 2 stig með þrist þegar tæpar 2 mínútur voru eftir en nær komust gestirnir ekki því Raggi tróð í andlitið á þeim og Basile gerði svo út um leikinn á línunni.

Basile átti stórkostlegan leik fyrir Stóla, stigahæstur á vellinum með 28 stig, frákastahæstur með 9 fráköst og stoðsendingahæstur með 8 stoðsendingar, 39 framlagsstig takk fyrir.

Viðtöl

Umfjöllun // Hjalti Árna

Fréttir
- Auglýsing -