HomeFréttirStólar fagna að sveitamannasið - „Nýmjólk og samloka“

Stólar fagna að sveitamannasið – „Nýmjólk og samloka“

Leikur tvö í einvígi Tindastóls og Grindavíkur fór fram í kvöld í Mustad höllinni í kvöld. Segja má að Tindastóll hafi átt ansi náðugt kvöld en liðið vann öruggan sigur 83-114. 

 

Helgi Margeirsson leikmaður Tindstóls deildi því á Twitter í kvöld hvernig liðið fagnaði þessum góða sigri. Að eigin sögn var það að sveitamannasið en á myndinni er Axel Kárason að gæða sér á Subway samloku og drekka nýmjólk á stút. 

 

Lið Tindastóls hefur nokkra tengingu við sveitina en Axel Kárason er annálaður sveitamaður og starfar sem dýralæknir. Hvernig hið alþjóðlega samlokumerki Subway hefur runnið niður hjá Axeli fylgir ekki sögunni. 

 

Tindastóll leiðir einvígið 2-0 og getur sent Grindavík í sumarfrí næsta föstudag. Þá fer þriðji leikur liðanna fram í Síkinu á Sauðárkróki. 

 

Fréttir
- Auglýsing -