HomeNeðri deildirBæjarins Beztu deild karlaStöðvuðu sigurgöngu ÍA í Smáranum

Stöðvuðu sigurgöngu ÍA í Smáranum

Breiðablik batt enda á fimm leikja sigurgöngu ÍA í 1. deild karla í kvöld með sannfærandi 96–77 sigri í Smáranum. Þetta var fyrsta tap Skagamanna á leiktíðinni en Blikar jöfnuðu KFG að stigum í baráttunni á toppi deildarinnar með átta stig.  

Jafnræði var með liðunum framan af og leiddi Breiðablik 26–24 eftir fyrsta leikhluta. Heimamenn skildu gestina hins vegar eftir í öðrum leikhluta þar sem þeir skoruðu 32 stig gegn 18 og náðu sextán stiga forskoti fyrir hlé, 58–42. Blikar héldu öruggri forystu allan síðari hálfleikinn og náðu mest 23 stiga forskoti. Sóknarleikur heimamanna gekk einstaklega vel og skilaði 53% skotnýtingu auk 58 stiga inni í teignum, á meðan Skagamenn hittu aðeins úr 20% þriggja stiga skota sinna.  

Adrian Darren McIntyre fór fyrir Blikum og daðraði við þrefalda tvennu með 32 stig, 10 stoðsendingar, 9 fráköst og 6 stolna bolta. Viktor Máni Steffensen skilaði 26 stigum og 5 fráköstum, Vojtěch Novák skoraði 12 stig og reif niður 9 fráköst og Veigar Elí Grétarsson bætti við 10 stigum og 8 fráköstum.  

Hjá ÍA var Gojko Sudzum atkvæðamestur með 21 stig og 9 fráköst, Sölvi Ólason skoraði 17 stig og gaf 6 stoðsendingar, Marcus Tsohonis skilaði 12 stigum og Igor Maric skoraði 11 stig ásamt því að taka 8 fráköst.

Tölfræði leiks

Viðtöl / Tómas Kárason

Fréttir
- Auglýsing -