Valur sótti mikilvægan 89–78 útisigur gegn nýliðum Ármanns í Laugardalshöll í kvöld í lokaleik 3. umferðar Bónus deildar kvenna.
Valskonur lögðu grunninn að sigrinum í fyrri hálfleik þar sem þær leiddu með sjö stigum eftir fyrsta leikhluta, 22–15, og juku muninn enn frekar í öðrum leikhluta. Íslandsmeistararnir fóru með örugga 22 stiga forystu til búningsklefa í leikhléi, 50–28.
Eftir hlé komu Ármenningar grimmir til baka, unnu þriðja leikhluta 28–17 og náðu að minnka muninn niður í sex stig á lokakaflanum. Valskonur héldu hins vegar haus á ögurstundu og sigldu 11 stiga sigri í höfn.
Skotnýting Vals fyrir utan þriggja stiga línuna vó þungt í leiknum, en liðið setti niður 13 þrista (36%) gegn átta hjá Ármanni, auk þess að hirða 46 fráköst gegn 37 hjá heimakonum.
Reshawna Rosie Stone fór fyrir liði Vals og átti góðan leik með 25 stig, sex fráköst og sjö stoðsendingar. Þóranna Kika Hodge-Carr átti sömuleiðis flottan leik með 17 stig og átta fráköst, Dzana Crnac skilaði 16 stigum og fimm fráköstum og Marlee Ann Ball bætti við 11 stigum.
Hjá Ármanni leiddi Jónína Þórdís Karlsdóttir liðið með 19 stigum og átta fráköstum. Diamond Alexis Battles skoraði 17 stig og gaf fimm stoðsendingar, Edyta Ewa Falenczyk setti 12 stig, tók fimm fráköst og gaf fimm stoðsendingar, og Ragnheiður Björk Einarsdóttir skilaði 10 stigum og sex fráköstum.




