Landsliðsmaðurinn Jón Axel Guðmundsson var í lykilhlutverki þegar lið hans, Burgos, sótti dýrmætan útisigur til Gran Canaria í spænskuACB deildinni í dag. Leiknum lauk með 109:95 sigri Burgos þar sem Jón Axel stýrði sóknarleiknum af mikilli yfirvegun. Á þeim 23 mínútum sem hann spilaði dreifði hann boltanum listilega og gaf samtals ellefu stoðsendingar, auk þess sem hann skoraði fimm stig og tók tvö fráköst.
Með þessum sigri heldur Burgos áfram baráttu sinni í deildinni en liðið situr nú í fjórtanda sæti af átján liðum. Það er mikið undir í hverjum leik þar sem deildin er gríðarlega jöfn, en til samanburðar má nefna að lið Bilbao sem Trtyggvi Snær Hlinason leikur með situr í níunda sæti og freistar þess að tryggja sér sæti í úrslitakeppninni.




