HomeFréttirStjörnustúlkur tryggðu sér titilinn í IceMar höllinni

Stjörnustúlkur tryggðu sér titilinn í IceMar höllinni

Á dögunum mættust Stjarnan og Njarðvík í úrslitum um Íslandsmeistaratitilinn í 9. flokki stúlkna. Stjarnan vann fyrsta leikinn í Ásgarði og tryggði sér svo titilinn með sigri í öðrum leiknum sem fór fram í IceMar höllinni, en honum lauk með sigri Stjörnunnar 46-66. Þjálfarar liðsins eru Hörður Unnsteinsson og Bára Björk Óladóttir.

Embla Hrönn Amlin Sigurðardóttir var valin verðmætasti leikmaður úrslitanna, en hún skilaði að meðaltali 17 stigum, 8 fráköstum og 2 stoðsendingum. Með þessum úrslitum urðu Garðbæingar Íslandsmeistarar í þessum flokki og óskum við þeim til hamingju með árangurinn.

Mynd / KKÍ

Fréttir
- Auglýsing -