Tveir leikir eru í Dominos deild karla og þrír í 1. deildinni í dag. Ber þar hæst að nefna ferð Stjörnunnar í Ljónagryfjuna, en Njarðvík hefur síðastliðin tvö ár slegið Stjörnuna út úr úrslitakeppninni. Leikurinn er í beinni útsendingu hjá Stöð 2 Sport.
Kynnir kvöldsins er heldur ekki af verri gerðinni.
Leikir dagsins:
Dominos deild karla
Haukar Þór frá Þorlákshöfn – kl. 19:15
Njarðvík Stjarnan – kl. 20:00 – í beinni útsendingu Stöð 2 Sport
1. deild karla
Vestri Hamar – kl. 19:15
Ármann FSU – kl. 19:15
Valur Fjölnir – kl. 19:15




